Íslenska

Ísland
Ísland

Íslenska

Áhrif breytinga laga um frjálsan búsetu- og atvinnurétt

Þann 1. maí 2006 tóku gildi lög sem heimila ríkisborgurum átta nýrra ríkja, Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands, í Evrópusambandinu að koma hingað til lands í atvinnuleit og ráða sig til starfa án sérstakra atvinnuleyfa. Þessir ríkisborgarar þurfa að sækja um EES-dvalarleyfi og atvinnurekendur sem ráða þá til starfa þurfa að tilkynna ráðninguna til Vinnumálastofnunar.

Atvinnurekendur eiga að tilkynna ráðningu til Vinnumálastofnunar innan tíu virkra daga.

Atvinnurekendur sem ráða ríkisborgara þessara ríkja til starfa þurfa að tilkynna um ráðninguna til Vinnumálastofnunar. Umræddir ríkisborgarar þurfa samt áfram að sækja um EES-dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga.

Staða þeirra sem höfðu öðlast tímabundin atvinnu- og dvalarleyfi fyrir 1. maí 2006

Ríkisborgarar framangreindra ríkja, sem komu til landsins fyrir 1. maí 2006 og hafa tímabundin atvinnu- og dvalarleyfi, fá sömu stöðu og landar þeirra sem koma eftir 1. maí. Þeir þurfa ekki sérstakt atvinnuleyfi vegna starfa sinna hér á landi en atvinnurekendur þurfa að tilkynna um ráðningu þeirra til Vinnumálastofnunar.

Staða þeirra sem höfðu öðlast búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi fyrir 1. maí 2006

Lögin sem öðluðust gildi 1. maí sl. hafa ekki áhrif á réttarstöðu ríkisborgara framangreindra ríkja sem hafa fengið bæði búsetuleyfi samkvæmt lögum um útlendinga og óbundið atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Atvinnurekendur þurfa ekki að tilkynna um ráðningu þeirra því þeir hafa ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi.

Aukinn forgangur ríkisborgara innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Með lögum þessum er forgangur ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins undirstrikaður enn frekar. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið skuldbundu íslensk stjórnvöld sig til að veita þeim sem eru ríkisborgarar aðildarríkjanna forgang fram yfir ríkisborgara annarra ríkja til að vinna á Íslandi. Atvinnurekendur eru hvattir til að leita eftir starfsfólki innan EES-svæðisins.

Veiting atvinnuleyfa til ríkisborgara frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Um veitingu atvinnuleyfa til ríkisborgara frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins munu áfram gilda lög um atvinnuréttindi útlendinga. Áður en atvinnuleyfi er veitt til ríkisborgara ríkja utan EES verða íslensk stjórnvöld að athuga hvort starfið hafi verið auglýst innan EES-svæðisins og ef ríkisborgari einhvers ríkis sem á aðild að EES samningnum hefur áhuga á starfinu hefur hann forgang í starfið. Þetta á við hvort sem um er að ræða ný atvinnuleyfi, framlengingu atvinnuleyfa eða umsókn um nýtt leyfi þegar skipt er um vinnuveitanda.

Stefna um aðlögun innflytjenda